Skilmálar
Síðast uppfært 17. nóvember 2026
Þessir skilmálar gilda um bókanir á padelvöllum og golfhermum CLUBS og kaup í vefverslun CLUBS á clubs.is. Með því að bóka eða panta og greiða staðfestir þú að hafa lesið skilmálana og samþykkt þá.
Kennitala 510826-0940 · VSK-númer 162630
Eyravegur 42, 800 Selfoss
Netfang: clubs@clubs.is
Bókun og greiðsla
Þú velur aðstöðu, dag og tíma og skráir nafn, símanúmer og netfang. Tíminn er frátekinn fyrir þig í 15 mínútur á meðan þú greiðir. Greitt er með greiðslukorti (Visa eða Mastercard) á öruggri greiðslusíðu Straums greiðslumiðlunar hf. Kortaupplýsingar fara aldrei um kerfi CLUBS.
Bókunin er staðfest þegar greiðsla hefur borist. Þá færð þú tölvupóst með bókunarnúmeri, QR-kóða og upplýsingum um tímann. Berist greiðsla ekki innan 15 mínútna losnar tíminn.
Verð
Öll verð eru í íslenskum krónum og með virðisaukaskatti. Gildandi verð birtist á clubs.is og í bókunarferlinu áður en greitt er, og það verð gildir um bókunina.
- Padelvöllur: 8.000 kr. fyrir 45 mínútur, 15.000 kr. fyrir 90 mínútur og 21.000 kr. fyrir 135 mínútur.
- Golfhermir, kynningarverð á klukkustund: 2.990 kr. virka daga kl. 06–15, 4.290 kr. virka daga eftir kl. 15 og 4.390 kr. um helgar.
Aðgangur
QR-kóðinn í staðfestingunni opnar útidyrnar frá 45 mínútum fyrir bókaðan tíma þar til 15 mínútum eftir að honum lýkur. Hópurinn getur notað sama kóða. Bókari ber ábyrgð á að kóðinn fari ekki til annarra en þeirra sem spila.
Umgengni og ábyrgð
Gestir skulu ganga vel um aðstöðuna og búnaðinn og fara eftir leiðbeiningum starfsfólks og merkingum á staðnum. Gestir bera ábyrgð á tjóni sem þeir valda af ásetningi eða gáleysi. Notkun aðstöðunnar er á eigin ábyrgð. CLUBS ber ekki ábyrgð á persónulegum munum gesta.
Vefverslun
Pöntun og greiðsla. Vörur eru greiddar með greiðslukorti á greiðslusíðu Straums við pöntun. Verð eru í íslenskum krónum með virðisaukaskatti. Þú færð staðfestingu í tölvupósti þegar greiðsla hefur borist.
Afhending. Vörurnar eru sérpantaðar frá birgja eftir að greiðsla berst og sóttar í CLUBS, Eyravegi 42, Selfossi. Afhending tekur yfirleitt 1–2 vikur. Við sendum tölvupóst þegar pöntunin er tilbúin. Ef vara reynist ekki fáanleg, eða ekki í þeirri stærð sem var valin, látum við þig vita og endurgreiðum hana að fullu nema þú kjósir annað.
Skilaréttur: þú getur fallið frá kaupum og skilað vöru innan 14 daga frá afhendingu án þess að tilgreina ástæðu. Láttu okkur vita á clubs@clubs.is með pöntunarnúmerinu og skilaðu vörunni í CLUBS. Varan þarf að vera ónotuð og í upprunalegum umbúðum.
Endurgreitt er inn á kortið sem greitt var með innan 14 daga frá því að við fáum tilkynningu um að þú fallir frá kaupum, en við megum bíða með endurgreiðslu þar til varan hefur borist okkur. Ef varan hefur rýrnað að verðmæti vegna meðferðar umfram það sem þarf til að kanna eðli hennar og eiginleika getur endurgreiðslan lækkað sem því nemur. Óskir þú frekar eftir annarri stærð reynum við að skipta eftir því sem birgir leyfir.
Gallar. Um galla fer samkvæmt lögum nr. 48/2003 um neytendakaup. Kvörtun vegna galla þarf að berast innan tveggja ára frá afhendingu. Hafðu samband á clubs@clubs.is og við finnum lausn, viðgerð, nýja vöru eða endurgreiðslu.
Persónuupplýsingar
Um meðferð persónuupplýsinga fer samkvæmt persónuverndarstefnu CLUBS.
Lög og ágreiningur
Um skilmálana gilda íslensk lög. Komi upp ágreiningur reynum við fyrst að leysa hann í sameiningu. Neytendur geta einnig leitað til kærunefndar vöru- og þjónustukaupa. Annars má reka mál fyrir Héraðsdómi Suðurlands.
Terms of sale
Last updated 17 November 2026
These terms apply to bookings of CLUBS padel courts and golf simulators and to purchases in the CLUBS web shop on clubs.is. By booking or ordering and paying you confirm that you have read and accept them.
Company ID 510826-0940 · VAT no. 162630
Eyravegur 42, 800 Selfoss, Iceland
Email: clubs@clubs.is
Booking and payment
You choose a court or simulator, a day and a time, and enter your name, phone number and email. The time is held for you for 15 minutes while you pay. Payment is by card (Visa or Mastercard) on the secure payment page of Straumur greiðslumiðlun hf. Card details never pass through CLUBS's systems.
The booking is confirmed once payment is received, and you get an email with a booking number, a QR code and the details of your booking. If payment isn't received within 15 minutes, the time is released.
Prices
All prices are in Icelandic krónur (ISK) and include VAT. The current price is shown on clubs.is and in the booking process before you pay, and that price applies to the booking.
- Padel court: 8,000 ISK for 45 minutes, 15,000 ISK for 90 minutes and 21,000 ISK for 135 minutes.
- Golf simulator, introductory price per hour: 2,990 ISK on weekdays 06:00–15:00, 4,290 ISK on weekdays after 15:00 and 4,390 ISK at weekends.
Access
The QR code in your confirmation opens the front door from 45 minutes before your booking until 15 minutes after it ends. Your group can share the code. The person who booked is responsible for not passing it on to anyone outside the group.
Conduct and liability
Guests must treat the facilities and equipment with care and follow staff instructions and signs on site. Guests are liable for damage they cause intentionally or through negligence. Use of the facilities is at your own risk. CLUBS is not responsible for guests' personal belongings.
Web shop
Ordering and payment. Items are paid by card on Straumur's payment page when you order. Prices are in Icelandic krónur and include VAT. You receive an email confirmation once payment has gone through.
Delivery. Items are ordered from the supplier after payment and picked up at CLUBS, Eyravegur 42, Selfoss. This usually takes 1–2 weeks. We email you when your order is ready. If an item turns out to be unavailable, or not available in the size you chose, we let you know and refund it in full unless you prefer something else.
Right of withdrawal: you can cancel your purchase and return an item within 14 days of pickup without giving a reason. Tell us at clubs@clubs.is with your order number and bring the item back to CLUBS. It must be unused and in its original packaging.
We refund the card you paid with within 14 days of being told you are withdrawing, but may wait until we have received the item. If the item has lost value through handling beyond what is needed to establish its nature and characteristics, the refund may be reduced accordingly. If you would rather have another size, we will try to exchange it as far as the supplier allows.
Defects. Defects are governed by the Icelandic Consumer Sales Act no. 48/2003. Complaints about a defect must be made within two years of pickup. Contact clubs@clubs.is and we will repair, replace or refund the item.
Personal data
Personal data is handled according to the CLUBS privacy policy.
Governing law and disputes
These terms are governed by Icelandic law. If a dispute arises we will first try to resolve it together. Consumers may also refer a dispute to the Icelandic Complaints Committee on Goods and Services (kærunefnd vöru- og þjónustukaupa). Otherwise, disputes go before the District Court of South Iceland (Héraðsdómur Suðurlands).